Við ráðum bæði nýútskrifaða háskólanema, meistaranema og reynda sérfræðinga til starfa. Við sækjumst eftir hæfasta fólkinu og því fleiri sem sækja um hjá okkur, þeim mun líklegra er að við finnum besta starfsfólkið.
Hjá okkur starfa löggiltir endurskoðendur, viðskiptafræðingar, lögfræðingar, verkfræðingar, tölvunarfræðingar, kerfisfræðingar, fjármálaverkfræðingar, viðurkenndir bókarar og svo mætti lengi telja.
Athugaðu hvort við höfum laust starf sem hentar menntun þinni og reynslu eða sendu okkur almenna umsókn. Við geymum umsóknir í 12 mánuði og byrjum alltaf á því að leita í okkar eigin gagnagrunni þegar störf losna.